Skipulagning og framkvæmd fræðslu með fullorðnum
15. janúar 2016 kl. 9:00 – 16:30
Dagskrá
Nokkrar punktaspurningar tóku á móti þátttakendum þegar þeir mættu. Svörin við þeim gefa grófa mynd af reynslu þeirra í tengslum við fullorðinsfræðslu:
Þá byrjaði staðlotan með kynningu og umræðum:
- Kennarinn kynnti sig
- Þátttakendur kynntust (Nágrannaviðtal) og kynntu sessunaut sinn fyrir hinum
- Kynning á markmiðum námskeiðsins og í kjölfarið umræða um dagskrá:
Þá var kominn tími á að fá viðbrögð þátttakenda við markmiðum námskeiðsins og kafa aðeins ofan í væntingar þeirra. (Þar notuðum við aðferð í ætt við „1-2 og allir“ (Sjá líka hér))
Umræður í hópum um væntingar:
Niðurstaðan:
Að loknu kaffihléi tóku við kynning og umræður um aðal viðfangsefni námskeiðsins: Hönnun námsferla, á plakatinu má sjá helstu atriði sem koma fyrir í svo til öllum módelum sem eru notuð til að stýra skipulagningu námsferla:
Sjá bloggfærslu og stuttan fyrirlestur um efnið.
Í kjölfar umræðu um hönnunarferlið snérum við okkur að því hvernig við munum raða upp þemum á námskeiðinu til þess að ná markmiðum námskeiðsins:
Um Nám
Næsta mál á dagskrá var umræða um nám. Þar rifjuðum við upp nokkrar skilgreiningar á námi eins og Illeris túlkar þær í bókinni „How we learn“. Þar byggir hann á Piaget sem flokkar námi í þrjá flokka, og bætir sjálfur einum við:
Sjá bókina hjá Google Books og sjá lista Hróbjarts yfir efni frá Illeris
Fyrirlestur Hróbjarts:
…og Lestu nánar um þessa framsetningu hér)
Þá snérum við okkur að námi fullorðinna. (Kortaspurning)
Að loknum umræðum þátttakenda í hópum og í plenum um einkenni fullorðinna tók við stuttur fyrirlestur Hróbjarts um fullyrðingar Knowles um fullorðna námsmenn:
12:30-13:00 Hádegishlé
Að loknu hádegishléi skoðuðum við fyrirbærið hönnun námsferla frá nokkrum sjónarhonum:
Fyrirlestur og umræður um það sem flest ferli / aðferðir eða nálganir við skipulagningu námsferla eiga sameiginlegt:
Þessa nálgun bárum við saman við hina hefðbundnu ADDIE nálgun:
… og við nýlegar leiðir – sem eru notaðar við skipulagningu og hönnun á öðrum sviðum með góðum árangri, en henta líka mjög vel við hönnun námsferla:
Seinni hluti námskeiðsins mun fara i að skoða nokkrar ólíkar nálganir eins og þessar.
Verkefni
Til að ná markmiðum námskeiðsins vinna þátttakendur nokkur verkefni sem tengjast náið verkefninu: „Að hanna námsferli“. Við fórum yfir tillögur kennarans að verkefnum bæði með fyrirlestri og umræðum í hópum:
Svona vinnum við saman
Staðlotunni lauk svo á samningaviðæðum um samvinnu á námskeiðinu. Kjarnin er að
- Námsefni frá kennara er og verður að finna á námsbrautarvefnum í flokknum SFFF
- Vinnan með námsefnið fer fram
- á staðlotum 15. jan & 8. apríl
- á vikulegum fundum þriðjudaga kl. 15:30
- á þessum vef
- Umræður UM námskeiðið fara fram í Facebook hóp námskeiðsins
Nánari utlistun á þessu og verkefnunum kemur í sérstöku skjali MJÖG fljótlega.
Endir
Staðlotunni lauk á því að þátttakendur skráðu á blað það sem þeir taka með sér heim að staðlotu lokinni (Pokinn) og með almennum umræðum um innihald pokanna.
Takk fyrir þetta!
kærar þakkir, mér finnst bókarhlutinn eftir Illeris mjög áhugaverður, en erfitt að lesa hann af skjánum, tekst ekki að vista hann eða prenta.. er möguleiki að fá hann á pdf formi inn á Uglu? eða lumar einhver á góðum ráðum hvernig er hægt að opna gluggann þannig að textinn fylli skjáinn?
bestu kveðjur
Bókarkaflinn er bara gluggi inn í bókina þar sem hún er vistuð hjá Google Books. Þú getur smellt á tengilinn fyrir neðan til að finna bókina hjá Google-Books. Sömuleiðist er hægt að fleta í henni hjá Amazon. Þar er hægt að kaupa hana – líka sem Kindle bók (þannig les ég hana) en til að fá útprentað eintak sýnist mér eina leiðin vera að kaupa hana 😉
takk fyrir þessar upplýsingar, ég fann grein á listanum sem er hægt að sækja á pdf